|
|  |
Hægt er að senda rafrænar tilkynningar um vinnslu persónuupplýsinga beint af þessari síðu (tilkynningar sem skylt er að senda skv. 32. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga). Eyðblað fyrir tilkynningar má fá fram með þvi að velja:
Tilkynna vinnslu
Hér er einnig ægt að leita í tilkynningum sem þegar hafa borist Persónuvernd. Hægt er leita eftir nöfnum ábyrgðaraðila, tilkynninganúmerum, tilgangi vinnslu, tegundum upplýsinga og nöfnum vinnsluaðila:
Leita í tilkynningum
Hér er dreifibréf, sem hefur að geyma leiðbeiningar um vísindarannsóknir, þ.e. hvenær þurfi að fá leyfi vegna þeirra og hvenær nægi að tilkynna um þær.
.............
Almennt um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu:
Tilkynningarskyld vinnsla:
Meginreglan er að vinnsla persónuupplýsinga er tilkynningarskyld. Með því er átt við að alla jafna er skylt að tilkynna Persónuvernd um vinnsluna, sbr. 31. og 32. gr. laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000.
Hægt er að tilkynna með því að smella á hnappinn "Tilkynna vinnslu" hér að ofan. Senda má tilkynninguna rafrænt með því að smella á hnappinn "senda tilkynningu" (kemur upp síðar). Þegar það hefur verið gert kemur á skjáinn móttökukvittun með númeri tilkynningarinnar. Byrja má að vinna með persónuupplýsingar (safna, skrá, miðla o.s.frv.) þegar borist hefur bréf frá Persónuvernd um að hún geri ekki athugasemdir - eða þegar 15 dagar eru liðnir frá því að tilkynningin var send - hvort sem gerist fyrr.
Leyfisskyld vinnsla:
Í undantekningartilvikum er vinnsla persónuupplýsinga leyfisskyld, en þá er vinnslan einungis heimil að fengnu leyfi Persónuverndar. Þetta á við þegar 7. gr. reglna nr. 698/2004 um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga ná til vinnslunnar. Til þess að sækja um slíkt leyfi er eyðublaðið "Almenn leyfisumsókn" fyllt út, dagsett, undirritað og sent Persónuvernd í pósti. Umsóknir eru jafnan afgreiddar innan skamms tíma frá því að þær berast.
Vinnsla sem hvorki er tilkynningarskyld né leyfisskyld:
Loks eru sumar tegundir vinnslu persónuupplýsinga hvorki tilkynningarskyldar né leyfisskyldar. Það á annars vegar við um vinnslu sem ekki fellur undir gildissvið laganna, sbr. 3. og 6. gr. þeirra. Hins vegar er vinnsla hvorki tilkynningarskyld né leyfisskyld ef hún fellur undir 1. mgr. 5. gr. reglna nr. 698/2004 um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga , sbr. þó 2. mgr. greinarinnar.
Persónuvernd heldur skrá yfir innkomnar tilkynningar um vinnslu persónuupplýsinga. Í samræmi við 20. gr. laganna skal tekið fram að ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu er Persónuvernd. Markmið vinnslunnar er að fullnægja ákvæðum 17. gr. laganna, þar sem boðið er að Persónuvernd skuli halda skra yfir alla vinnslu sem henni er tilkynnt um. Hvað varðar auðkenningu upplýsinganna og afhendingu þeirra til annarra skal upplýst að allar upplýsingar sem færðar eru inn í tilkynningar eru almenningi aðgangilegar með því að smella á "Leit í tilkynningum" hér á síðunni. Þá birtist tilkynningin eins og hún var send Persónuvernd. Í reglum nr. 698/2004, um tilkynningarskylda og leyfsskylda vinnslu persónuupplýsinga, er kveðið á um hvaða vinnsla persónuupplýsinga er tilkynningarskyld og hver ekki. Ávallt er þó heimilt að tillkynna vinnslu persónuupplýsinga.
 |  |