|
|  |
Áhugaverðar síður er tengjast verksviði Persónuverndar beint eða óbeint:
EVRÓPURÁÐIÐ
I.Hér að tengill við heimasíðu
Evrópuráðsins um ýmis málefni er varða persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
II. Hér er að finna tengil við heimasíðu Mannréttindadómstóls Evrópu / Mannréttindavef Evrópuráðsins
EVRÓPUSAMBANDIÐ
I. Hér er tengill við heimasíðu Evrópusambandsins þar sem birt er tilskipun þess um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga -
"Directive 95/46/EC of the European Parliament and of the Council of 24 October 1995 on the protection of individuals with regard to the processing of personal data and on the free movement of such data".
(ath. að ef valinn er hnappurinn "Lög og frumvörp" á forsíðu heimasíðu Persónuverndar má finna íslenska þýðingu tilskipunarinnar).
II. Hér er sérstakur tengill við síðu sem hefur að geyma ýmsar nytsamar upplýsingar um persónuvernd og starf vinnuhóps sem starfar samkvæmt 29. gr. framangreindrar tilskipunar. Meðal þess sem sá vinnuhópur hefur unnið að er samstarfverkefni um flutning persónuupplýsinga til Bandaríkjanna, og hér er tengill við vefsíðu bandaríska viðskiptaráðuneytisins um þetta mál þ.e. "öruggar hafnir". Þar er m.a. er að finna samantekt í stuttu máli um aðalefni meginreglnanna um "Safe harbor" (þ.e. viðurkennda viðtökuaðila persónuupplýsinga).
III. Hér tengill við embætti evrópsku persónuverndarstofnunarinnar þ.e. - "European Data Protection Supervisor".
SCHENGEN
Persónuvernd tekur þátt í starfi JSA (Joint Supervisory Authority) en það er stofnun sem hefur eftirlit með því að einkalífsréttur sé virtur og öryggis gætt í tengslum við rekstur Schengen-upplýsingakerfisins. Hér er tengill við heimasíðu JSA en þar er að finna ýmislegt varðandi starf þessarar stofnunar. Hún hefur aðsetur í Brussel en fylgist m.a. með öryggis-, aðgangs- og persónuverndarþáttum í rekstri C.SIS í Strasbourg. Stofnun þessi hefur samstarf við persónuverndarstofnanir í öðrum þátttökulöndum samstarfsins og hefur gefið út bækling á öllum tungumálum ESB um persónuvernd og réttindi einstaklinga varðandi skráningar í upplýsingakerfið.
Nánari upplýsingar um Schengen fá bæði finna hér á heimasíðu Sameiginlegu Eftirlitsstofnunar Schengen (JSA) og hér á upplýsingasíðu dóms- og kirkjumálaráðuneytis um Schengen
Hér er tengill við upplýsingasíðuna "Virtual Privacy Office" en þar er að finna fjölþættar upplýsingar um málefni er tengjast persónuvernd. Hér eru m.a. settar fram algengar spurningar og svör, fjallað um persónuvernd á Netinu, videó-vöktun o.fl. Hér er og hægt að nálgast upplýsingar um allar evrópskar systurstofnanir Persónuverndar og tengla við heimasíður þeirra.
Upplýsingasíða um breska öryggisstaðalinn BS7799. Hann tekur m.a. bæði á atriðum er lúta að rekstrarlegu öryggi og aðgangsöryggi upplýsingakerfa. Staðlaráð hefur unnið frumvörp að íslenskri þýðingu á staðlinum. Frumvarpið ber heitið frÍST BS 7799 Stjórnun upplýsingaverndar. Hafa Staðlaráð Íslands og Fagráð í upplýsingatækni (FUT) auglýst þau til umsagnar. Ýmsar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Staðlaráðs.
Upplýsingasíða um Common Criteria Ítarlegur og viðamikill staðall sem notaður er til að þróa upplýsingaöryggiskerfi.
Á heimasíðu Skýrslutæknifélags Íslands er t.d. tölvuorðasafn og tímaritið Tölvumál, en í því er m.a. að finna ýmsar greinar um öryggismál persónuupplýsinga.
U.S.A. - NATIONAL BIOETHICS ADVISOR - Hér er m.a. að finna nýlegt álit ráðgjafarnefndar bandríkjastjórnar um meðferð heilsufarsupplýsinga í vísindarannsóknum.
Heimasíða fyrirtækisins VERISIGN en þar er að finna upplýsingar um ýmsar öryggislausnir fyrir samskipti á Netinu - um dulkóðunarlykla, rafrænar undirskriftir, PKI-kerfi o.fl.
Heimaíða .NET Passport sem gerir kleift að nota netfang og eitt aðgangsorð til að skrá sig á heimasíður og þjónustu sem notast við hugbúnað frá .NET Passport. Með þeim hætti þarf ekki að muna mörg aðgangsorð.
Vefsíða Cert-miðstöðvarinnar sem sérhæfir sig í viðbrögðum gegn "tölvuþrjótum".
EFC (Electronic Frontier Canada) eru kanadísk samtök sem fjalla á þessum vefsíðum um dulkóðun og hvernig eigi að beita henni.
Dulkóðun Islandia.
KITH (Kompetansesenter for IT i Helsevesenet) - á vefsíðunni er fjallað um samskipti og notkun gagna í norska heilbrigðiskerfinu.
Heimasíða á vegum Háskólans í Osló sem að fjallar um norskan persónuverndarrétt. Hér má finna norsk lög á þessu sviði, frumvörp, dómafordæmi o.fl. Einnig er þarna að finna yfirlit yfir erlendan persónuverndarrétt og fjöldi tenginga við erlendar heimasíður sem að fjalla um persónuvernd.
privacy.org - vefsetur þar sem fjallað er um ýmislegt sem viðkemur gagnaöryggi.
Þýsk vefsíða um tölvuöryggismál, rekin á vegum þýska innanríkisráðuneytisins. Hér má finna öryggishandbók bæði á ensku og þýsku (velja IT-Grundschutz á forsíðu).
Umboðsmaður Alþingis.
Heimasíða Vísindasiðanefndar.
Heimasíða Blaðamannafélags Íslands, þ. á m. siðanefndar BÍ.
Heimasíða danska Þjóðþingsins.
Lagasafn á heimasíðu danska dómsmálaráðuneytisins.
Upplýsingasíða sænska þjóðþingsins.
Heimasíða persónuverndarstofnunar Viktoríuríkis í Ástralíu. Þarna er m.a. að finna kort af Ástralíu þar sem hægt er að fá upplýsingar um svæðisbundna persónuverndarlöggjöf í landinu.
 |  |